Haldin var slökkviliðsæfing á Vopnafirði í gærkvöld. Farið var yfir allan búnað og dælugeta prófuð. Búið er að setja lausadælu fasta aftan í 71-571 er er orðinn tankbíll úr því að vera slökkvibíll eftir að dælan í honum hrundi. Einnig var farið í gegnum allar sem þurfa gangsetningu við. Farið var yfir nýju háþrýstidæluna í 71-171 sem er tækja og mannabíllinn. Þetta gekk allt vel og á eftir var boðið upp á flotta marenstertu sem menn gæddu sér á eftir góða æfingu.