
| Slökkviliðsæfing á Seyðisfirði í apríl 2009 |
| Skrifað af: Björn H. Sigurbjörnsson | |||
| Miðvikudagur, 22. apríl 2009 08:50 | |||
|
Slökkviliðsæfing var haldin á Seyðisfirði á s.l. mánudagskvöld. Mætting var góð eð 9 af 10 slökkviliðsmönnum. Æft var vatnsöflun úr brunahönum. Fyrst var farið yfir nokkra þætti á glærum og síðan farið á verksmiðjubryggju og tengd var tvöföld 3" lögn frá brunahana í safnstykki við dælu á slökkvibíl. Síðan lagðar tvær burðarlagnir að greinastykki og síðan deilt út á fjóra stúta. Skemmst frá því að segja að bruanhaninn kom virkilega vel út og skilað því magni sem til var ætlast af honum.
Æfingin gekk vel í alla staði. Flest allir slökkviliðsmenn á Seyðisfirði eru nýliðar og standa þeir sig virkilega vel og eru áhugasamir við að læra hlutverk slökkviliðsmannsins.
|