|
Skrifað af: Administrator
|
|
Miðvikudagur, 04. febrúar 2009 17:11 |
|
Slökkvistöðin á Egilsstöðum er staðsett á Egilsstaðaflugvelli. Hún er stálgrindahús, upphaflega byggt sem bræðsla á Hánefsstaðaeyrum í Seyðisfirði. Flugfélag Austurlands keypti húsið og notaði sem flugskýli til margra ára, byggt 1974 og 1995 og er 401,5 m². Slökkviliðið flutti í húsnæðið árið 2000. Húsnæðið skiptist í sal fyrir slökkvibíla, 349.2 m² og skrifstofu 52,3 m². |