Bílar og búnaður

Heimsóknir á síðuna

Skoða innlit efnis : 87428
Slökkviliðin
Um Brunavarnir á Austurlandi

Brunavarnir á Austurlandi er sameiginlegt rekstrafélag sex sveitarfélaga: Fljótsdalshéraðs 59,74%, Fljótsdalshrepps 7,94%, Vopnafjarðarhrepps 10,77%, Borgarfjarðar Eystri 1,94% Djúpavogshreppur 7,10%, Seyðisfjörður 12,52%. Þessi sveitarfélög stofnuðu Brunavarnir árið 2007. Seyðisfjörður var þá ekki með en kom inn í rekstrardæmið um áramótin 2009.

Yfirstjórn eru skipuð einum fulltrúa frá hverju sveitarfélagi og sitja nú sveitar- og bæjarstjórar sem fulltrúar í stjórn. Þetta rekstrarfélag er eingöngu með daglegan rekstur Brunavarna og laun slökkviliðsmanna.

Reknar eru fimm slökkvistöðvar á svæðinu en það eru á Egilsstöðum – Vopnafirði – Borgarfirði – Djúpavogi - Seyðisfirði. Hvert sveitarfélag sér um rekstur og fjárfestingar í sinni slökkvistöð eftir tillögum að fjárhagsáætlunum frá slökkviliðstjóra. Fjöldi slökkviliðsmanna í Brunavörnum á Austurlandi eru því um 45 og skiptist það þannig að á Egilsstöðum eru 10 á Vopnafirði eru 10 á Borgarfirði eru 8 og Djúpavogi eru 8 og Seyðisfirði 8.
Skipulagningin er ekki þannig að ef útkall verður á svæðinu fá allir boðin heldur er það þannig að ef útkall verðu á svæði Vopnafjarðar þá fá slökkvistjórar ásamt slökkviliðsmönnum á Vopnafirði boðin. Ef þörf er á meiri aðstoð fyrir vettvang þá eru send strax út boð á þá slökkviliðsmenn sem næst búa.

Brunavarnir á Austurlandi sér um menntun og þjálfun slökkviliðsmanna á svæðinu ásamt skipulagi þeirra. Gerð er æfingaáætlun ár hvert fyrir alla staðina og eru setta upp um 10 æfinga á ári á hvern stað.

Aðalskrifstofa Brunavarna á Austurlandi er staðsett á Egilsstöðum á Flugvallarsvæðinu.

 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 Næsta > Síðasta >>

Síða 1 af 7

Viðburðir

Engir viðburðir

Könnun

Er slökkvitæki á þínu heimili
 

Dagatal

Febrúar 2012
S M Þ M F F L
29 30 31 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 1 2 3