
| Slökkvilið Vopnafjarðar |
| Skrifað af: Björn H. Sigurbjörnsson |
| Föstudagur, 13. febrúar 2009 22:10 |
|
Slökkvilið Vopanfjarðar hefur aðsetur að Búðaöxl 3 á Vopnafirði. Þessi bygging var upprunalega byggð sem trésmíðaverkstæði. Byggingin öll er um 500 m² að stærð. Húsinu var skipt í tvo sjálfstæða helminga og keypti verslunareigandi minni helminginn eða 174,9 m² og rak þar verslun í nokkur ár. Um 1995 keypti einkaaðili þann hluta og byggði við eitt bil í viðbót eða 67,3 m² og var þá húsnæðið orðið ca. 242,2 m². Það var svo árið 2000 sem sveitarfélagið keypti húsnæðið sem slökkvistöð. Húsnæðið er vel hengtugt undir slíka starfsemi. í húsnæðinu eru útkeyrslu hurðir fyrir 3 bíla með sfjarstýrðum rennihurðum. Í húsnæðinu er fundarsalur, kaffistofa og skrifstofa. Það sem vantar er aðstaða fyrir starfsmenn t.d. búningsaðstaða með sturtum. |