
| Samningar við björgunarsveitir á starfssvæði Brunavarna |
| Skrifað af: Björn H. Sigurbjörnsson | |||
| Miðvikudagur, 24. febrúar 2010 14:24 | |||
|
Brunavarnir á Austurlandi hefur gert samning við björguanrsveitir á strarfssvæðinu. Samningurinn er á þá leið að björgunarsveitirnar verði svokallað vara lið slökkviliðina ef upp kemur stór bruni. Um er að ræða fyrst og fremst aðstoð við slöllvistarf utanhúss þ.e. aðstoð við að flytja vatn á vettvang, koma lausadælum í vatnsból og meðferð slangna og stúta. Samningurinn hljóðar upp á að Brunavarnir á Austurlandi haldi eina stóra æfingu með björgunarsveitarfólki á ári. Oftar ef þurfa þykir. Greitt verður sérstalega fyrir þessa æfingu. Æfingin er í fyrlestraformi og verleg æfing. Nú þegar er búið að halda tvær æfingar, á Egilsstöðum og Seyðisfirði, og gengu þær einkar vel. Mikil ánægja er hjá þeim björgunarsveitum sem nú þegar hafa skrifað undir samninginn og hafa þegar æft samkvæmt honum. sjá myndir hér.
|