|
Skrifað af: Björn H. Sigurbjörnsson
|
|
Fimmtudagur, 12. nóvember 2009 09:37 |
|
Nú standa yfir heimsóknir í alla leikskóla á starfsvæði Brunavarna á Austurlandi. Allir krakkar á elsta ári í leikskólunum eru heimsótt og þau gerð að aðstoðarslökkviliðsmönnum slökkviliðsins á staðnum. Þau fá sér vesti sem þau fara í einu sinni í mánuði og fara þá með kennara sínum um allan skólann og skoða hvort brunavarnir séu ekki í góðu lagi. Þau skoða m.a. reykskynjara, slökkvitæki, útgönguleiðir og margt fleira sem viðkemur öryggi þeirra í leikskólanum. Síðan fara þau með þessar upplýsingar heim til foreldra og sjá til þess að allt sé í góðu standi þar. Myndir hér. |