Bílar og búnaður

Heimsóknir á síðuna

Skoða innlit efnis : 47570
Forsíða
Heimsóknum í grunn- og leikskóla lokið.
Skrifað af: Björn H. Sigurbjörnsson   
Þriðjudagur, 15. desember 2009 08:35

Leikskólinn á Djúpavogi 2009 Eldvarnarátakið Logi og Glóð






Þá er heimsóknum í grunn- og leikskóla með eldvarnarverkefnin lokið á starfssvæðinu á þessu ári. Farið var í alla grunnskóla og flesta leikskóla. Okkur var allstaðar vel tekið og sýndu bæði nemendur og kennarar mikinn áhuga fyrir þessum heimsóknum. Heyrst hefur að sumir foreldrar hafi ekki fengið frið heima fyrir fyrr en búið væri að athuga með hvort reykskynjarar væru ekki í lagi og að handslökkvitækin hefðu verið yfirfarin. Svo á þetta að virka.

Einnig voru framkvæmdar rýmingaræfingar í þeim grunnskólum sem þess óskuðu. Það voru í þetta skiptið grunnskólarnir á Borgarfirði Eystri og á Seyðisfirði. Rýmingaæfignarnar gengu vel sjá frétt á vef Seyðisfjarðar.

 
Útkall í bílslys á Sandvíkurheiði
Skrifað af: Björn H. Sigurbjörnsson   
Fimmtudagur, 03. desember 2009 14:24

Bílvelta á Sandvíkurheiði des. 2009

 

 

 

 

Myndin er af slysstað.

 

Slökkvilið Vopnafjarðar var kallað út í bílslys í dag kl. 10:35 á Sandvíkurheiði. Tilkynning útkalls var með þeim hætti að tveir menn væru fastir í bílnum en engin slys á fólki. Þegar Tækjabíll mætti á staðinn voru allir komnir út og ekki þörf á aðstoð á staðnum. Eins og áður sagði voru engin slys á fólki og þykir það mikil mildi þar sem bíllinn var mjög illa farinn. Á staðinn mættu sjúkrabíll, lögreglan og slökkvilið.

Nánar...
 
Eldvarnarátak LSOS 2009
Skrifað af: Björn H. Sigurbjörnsson   
Þriðjudagur, 24. nóvember 2009 11:55

Þá er komið að Eldvarnarátaki Landssambandi slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna sem haldið er ár hvert. Brunavarnir á Austurlandi taka þátt í þessu átaki með því að fara í alla skóla á svæðinu og hitta krakka í 3. bekk. Þetta eldvarnaátak er ætlað fyrst og fremst fyrir þann aldurshóp. Brunavanir á Austurlandi hafa einnig farið í 1. og 2. bekk með góða og skemmtilega gjöf frá Lionsklúbbum á svæðinu sem er litabók sem heitir "Lærið allt um brunavarnir á heimilinu".

Nú hefur LSOS gefið út myndskreytta bók um slökkviálfana Loga og Glóð og illvirkjann Brennu-Varg.

Bókin ber heitið Brennu-Vargur og er spennusaga. Logi og Glóð koma óvænt fram á sjónarsviðið þegar heimili þeirra eyðist í eldi. Sigfinnur slökkviliðsstjóri tekur þau upp á arma sína og býður þeim að búa í slökkvistöðinni í Bænum, þar sem sagan gerist. Systkinin gerast þá aðstoðarmenn slökkviliðsins enda eru þau búin þeim hæfileika að geta vaðið eld og brennistein eins og ekkert sé. Í ljós kemur að Brennu-Vargur gengur laus í Bænum. Hann er fjarskyldur ættingi Loga og Glóðar og hefur ekkert gott í hyggju. Þegar Brennu-Vargur lætur til skarar skríða á ný reynir mjög á snarræði og hugrekki Loga og Glóðar.

 

 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 6 af 11

Viðburðir

Engir viðburðir

Könnun

Er slökkvitæki á þínu heimili
 

Dagatal

September 2010
S M Þ M F F L
29 30 31 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 1 2