|
Skrifað af: Björn H. Sigurbjörnsson
|
|
Þriðjudagur, 19. janúar 2010 13:56 |
|
Miklar breytingar hafa átt sér stað á skrifstofuaðstöðu á slökkvistöðinni á Egilsstöðum. Húsgögn hafa verið endurnýjuð, veggir málaðir og parket sett á gólf. Brunavarnir á Héraði fluttu inn í þessa slökkvistöð fyrir um 10 árum og þótti þá nóg um. Gamlan skrifstofubúnað átti að nota til að byrja með og var sá búnaður enn í dag.
Brunavarnir á Austurlandi notar þessa aðstöðu í dag og er um tvær skrifstofur að ræða fyrir slökkviliðsstjóra og aðstoðarslökkviliðsstjóra. Einnig var sett upp aðstaða fyrir varðstjóra. |