Bílar og búnaður

Heimsóknir á síðuna

Skoða innlit efnis : 47437
Forsíða
Samningar við björgunarsveitir á starfssvæði Brunavarna
Skrifað af: Björn H. Sigurbjörnsson   
Miðvikudagur, 24. febrúar 2010 14:24

Björgunarsveitin Hérað

 

 

 

 

Brunavarnir á Austurlandi hefur gert samning við björguanrsveitir á strarfssvæðinu. Samningurinn er á þá leið að björgunarsveitirnar verði svokallað vara lið slökkviliðina ef upp kemur stór bruni. Um er að ræða fyrst og fremst aðstoð við slöllvistarf utanhúss þ.e. aðstoð við að flytja vatn á vettvang, koma lausadælum í vatnsból og meðferð slangna og stúta. Samningurinn hljóðar upp á að Brunavarnir á Austurlandi haldi eina stóra æfingu með björgunarsveitarfólki á ári. Oftar ef þurfa þykir. Greitt verður sérstalega fyrir þessa æfingu. Æfingin er í fyrlestraformi og verleg æfing.

Nú þegar er búið að halda tvær æfingar, á Egilsstöðum og Seyðisfirði, og gengu þær einkar vel. Mikil ánægja er hjá þeim björgunarsveitum sem nú þegar hafa skrifað undir samninginn og hafa þegar æft samkvæmt honum. sjá myndir hér.

 
112 dagurinn
Skrifað af: Björn H. Sigurbjörnsson   
Fimmtudagur, 11. febrúar 2010 12:15

112 Dagurinn

 

 

 

 

112 dagurinn er í dag 11/2 2010. Viðbragðsaðilar á starfssvæði Brunavarna mun vera sýnilegir í dag. Betri upplýsingar um þennan dag er að finna á heimasíðum Brunamálastofnunar -  brunamal.is og 112 - 112.is

Dagskráin verður sem hér segir á þeim stöðum sem hún hefur verið ákveðin.

Egilsstaðir: Opið hús hjá björgunarsveitinn Hérað í dag 11/2 kl. 18:00 þar sem viðbragðsaðilar koma saman og sýna búnað. Slökkviliðsmenn okkar mæta á staðinn með tæki og búnað.

Vopnafjörður: 112 dagurinn verður færður á laugardaginn 13/2 kl.13:00. Dagskráin byrjar með því að viðbragðsaðilar taka rúnt um bæinn og láta vita af sér og síðan safnast allir saman í húsi björgunarsveitarinnar Vopna þar sem slysavarðskonur bjóða upp á kaffi fyrir almenning.

Djúpivogur: 112 dagurinn verður færður á laugardaginn13/2.  Upp úr kl. 12:00 munu allir viðbragðsbílar byggðarlagsins keyra um götur Djúpavogs. Kl. 13:00 - 15:00 bjóða viðbragðsaðilar Djúpavogs upp á léttar veitingar í Sambúð.

Í Sambúð verða til sýnis bílar og græjur af öllum stærðum og gerðum.

Sjá heimasíðu Djúpavogs - djúpivogur.is

Seyðisfjörður: Haldið verður upp á 112 daginn í dag þar sem viðbragðsaðilar fara rúnt um bæinn á útkallsbílum og hittast við björgunarsveitarhús Ísólfs. Sjá betur á heimasíðu Seyðisfjarðar - sfk.is

Borgarfjörður: Óákveðið

 
Fundir með öllum slökkviliðunum lokið.
Skrifað af: Björn H. Sigurbjörnsson   
Föstudagur, 29. janúar 2010 14:44

Þá er fundarhöldum með öllum slökkviliðunum á starfssvæðinu lokið. Það er venja að í janúarmánuði séu haldnir fundir um starfsemin á liðnu ári með því að fara yfir æfingarsókn slökkviliðsmanna ásamt því að fara yfir útköll á svæðinu. Einnig er farið yfir æfingaáætlanir á árinu 2010. Mætingar á fundina voru góðar.

útköll frá 2007-2009 á starfssvæðinu Á meðfylgjandi grafi sést þróun útkalla á svæðinu frá því að Brunavarnir á Austurlandi byrjuðu. Ekki eru upplýsingar frá Seyðisfirði nema fyrir árið 2009. Seyðisfjörður komi ekki inn í samstarfið fyrr en það ár.

 

 

 

 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 4 af 11

Viðburðir

Engir viðburðir

Könnun

Er slökkvitæki á þínu heimili
 

Dagatal

September 2010
S M Þ M F F L
29 30 31 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 1 2