Bílar og búnaður

Heimsóknir á síðuna

Skoða innlit efnis : 87421
Forsíða
Slökkvibíll til sölu
Skrifað af: Björn H. Sigurbjörnsson   
Fimmtudagur, 06. maí 2010 09:40

Notaður slökkvibíll er til sölu á Vopnafirði. Nýtist vel sem tankbíll.

 

Bíllinn er að gerðinni Iveco Magirus - árgerð 1979 - Fatstanr. OI-141. Ekinn innan við 50.000 km. Hann er með 6000 lítra vatnstank og er í þokkalegu ástandi. Nýtist vel sem aukabíll til vatnsflutninga. Honum getur fylgt laus dæla Climax 1200 l/m með rafstarti og ljósamastri. Einni getur líka fylgt rafstöð og ljósamastur, uppdraganlegt með lofti.

Áhugasamir hafi endilega samband.

 
Námskeið haldið á Djúpavogi 7.-9. maí.
Skrifað af: Björn H. Sigurbjörnsson   
Þriðjudagur, 04. maí 2010 09:24
Námskeið á Seyðisfirði febrúar 2010 Námskeið 2.s.hl. verður haldið á Djúpavogi 7.-9. maí n.k. Námskeðiðið er liður í skólagöngu hlutastarfandi slökkviliðsmanna og er þriðja námskeiðið af fimm. Brunavarnir á Austurlandi halda námskeiðið ásamt Brunamálaskólanum. Skráðir hafa verið 12 þátttakendur frá Brunavörnum þ.e. 1 frá Vopnafirði - 4 frá Egilsstöðum - 5 frá Djúpavogi - 1 frá Borgarfirði og 1 frá Seyðisfirði. sjá dagskrá hér
 
Nýr slökkvibíll kominn á Vopnafjörð
Skrifað af: Björn H. Sigurbjörnsson   
Fimmtudagur, 15. apríl 2010 08:55

Bíllinn kominn heim Mikil breyting hefur átt sér stað á Vopnafirði í öryggismálum. Nýr fullkominn slökkvibíll var afhentur í slökkvistöðina á Vopnafirði frá Sigurjóni Magnússyni ehf.

Slökkvibílinn er í eigu Vopnafjarðarhrepps og Flugstoða ohf. og mun hann sinna bæði staðarslökkviliðinu og flugvellinum á staðnum. Vopnfirðingar eiga oft eftir að vera varir við bílinn á ferðinni í byggðalaginu þar sem flogið er áætlunarflug alla virka daga til og frá staðnum.

Bíllinn er hinn glæsilegasti og smíði hans vönduð.

Formleg afhending á bílnum á eftir að verða og veðrur þá bíllinn til sýnis fyrir almenning. Það verður auglýst hér síðar. sjá nánar í myndir

 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 3 af 12

Viðburðir

Engir viðburðir

Könnun

Er slökkvitæki á þínu heimili
 

Dagatal

Febrúar 2012
S M Þ M F F L
29 30 31 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 1 2 3