|
Skrifað af: Björn H. Sigurbjörnsson
|
|
Þriðjudagur, 29. júní 2010 08:25 |
|
Sunnudaginn 27/6 kl. 15:47 voru slökkviliðsmenn á Egilsstöðum kallaðir út í bílslys á þjóðvegi 1 á svokallaðri Háreksstaðaleið. Slysið varð rétt vestur af Háreksstöðum eða um 70 km frá Egilsstöðum. Tilkynnt var um að tveir hafi verið í bílnum. Annar var fastur í bílnum og þurfti því að beita björgunarbúnaði til að ná honum út. Báðir voru fluttir í sjúkrabíl á Egilsstaði og síðan með sjúkraflugi til Reykjavíkur.
|