
| Nýr slökkvibíll kominn á Vopnafjörð |
| Skrifað af: Björn H. Sigurbjörnsson |
| Fimmtudagur, 15. apríl 2010 08:55 |
|
Slökkvibílinn er í eigu Vopnafjarðarhrepps og Flugstoða ohf. og mun hann sinna bæði staðarslökkviliðinu og flugvellinum á staðnum. Vopnfirðingar eiga oft eftir að vera varir við bílinn á ferðinni í byggðalaginu þar sem flogið er áætlunarflug alla virka daga til og frá staðnum. Bíllinn er hinn glæsilegasti og smíði hans vönduð. Formleg afhending á bílnum á eftir að verða og veðrur þá bíllinn til sýnis fyrir almenning. Það verður auglýst hér síðar. sjá nánar í myndir |