Bílar og búnaður

Heimsóknir á síðuna

Skoða innlit efnis : 87515
Forsíða Fréttir Mikið um að vera hjá Brunavörnum.
Mikið um að vera hjá Brunavörnum.
Skrifað af: Björn H. Sigurbjörnsson   
Mánudagur, 28. september 2009 11:54

Mikið hefur verið um að vera hjá Brunavörnum síðustu daga. ekki er um að ræða útköll eða slíkt. Heldur eru það æfingar og forvarnir sem bera hæst hjá okkur.

Slökkviliðsæfing á Djúpavogi 24. september 2009 Þriðjudaginn 22/9 var haldin æfing á Borgarfirði Eystri þar sem björgun úr bílflökum og slökktur eldur í bílum. Gekk æfingin vel og voru öll verkefni leyst.




Krakkar úr leikskólanum á Vopnafirði Á síðastliðinn miðvikudag tók aðstoðarslökkviliðsstjóri á móti krökkum úr elsta árgangi (reyndar komin í 1. bekk grunnskóla núna) leikskólans Brekkbæ á Vopnafirði í slökkvistöðinni. Verið var að afhenda þeim viðurkenningarskjal fyrir þáttöku þeirra í verkafninu Logi og Glóð sem er samstarfsverkefni leikskóla á starfssvæðinu og Brunavarna.
Myndir má sjá hér.

Slökkviliðsæfing á Djúpavogi 24. september 2009 Fimmtudaginn þar á eftir fór fram æfing á Djúpavogi þar sem æft var björgun úr bílflökum og aðkoma að brunavettvangi. Gekk sú æfing vel.
Myndir frá æfingunni má sjá hér.



Kveikt í Stórabakka á Fljótsdalshéraði Svo var það í gær sunnudag sem húsið að Stórabakka á Fljótsdalshéraði var brennt.

Gekk sú æfing út á það að gerð var áætlun um stjórnun og framkvæmd  æfingarinnar samkvæmt leiðbeiningum Brunamálastofnunar um æfingar í  brennandi húsum. Notuð voru tæki og þjálfunarbúnaður af slökkvistöðinni á Egilsstöðum. Að þessari æfingu komu slökkviliðsmenn frá Egilsstöðum, Seyðisfirði og Djúpavogi. Frábær æfing og mikil reynsla að sögn þeirra sem að komu.

Myndir af aðgerðinni má sjá hér.

 

Viðburðir

Engir viðburðir

Könnun

Er slökkvitæki á þínu heimili
 

Dagatal

Febrúar 2012
S M Þ M F F L
29 30 31 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 1 2 3