|
Skrifað af: Björn H. Sigurbjörnsson
|
|
Þriðjudagur, 15. desember 2009 08:35 |
|
Þá er heimsóknum í grunn- og leikskóla með eldvarnarverkefnin lokið á starfssvæðinu á þessu ári. Farið var í alla grunnskóla og flesta leikskóla. Okkur var allstaðar vel tekið og sýndu bæði nemendur og kennarar mikinn áhuga fyrir þessum heimsóknum. Heyrst hefur að sumir foreldrar hafi ekki fengið frið heima fyrir fyrr en búið væri að athuga með hvort reykskynjarar væru ekki í lagi og að handslökkvitækin hefðu verið yfirfarin. Svo á þetta að virka.
Einnig voru framkvæmdar rýmingaræfingar í þeim grunnskólum sem þess óskuðu. Það voru í þetta skiptið grunnskólarnir á Borgarfirði Eystri og á Seyðisfirði. Rýmingaæfignarnar gengu vel sjá frétt á vef Seyðisfjarðar.
|