
| Góðri flugslysaæfingu lokið á Egilsstöðum. |
| Skrifað af: Björn H. Sigurbjörnsson | |||
| Mánudagur, 14. september 2009 09:56 | |||
|
Byrjað var á undirskrift á Flugslysaáætlun fyrir Egilsstaðaflugvöll og Vopnafjaðrarflugvöll. (sjá mynd) Æfingin var sett á stað um kl.11:30 á laugardagsmorgunn. Búið var að undirbúa viðbragðsaðila vel með góðum fyrirlestrum og æfingum. Æfingin gekk vel í alla staði.
Eftir að útkall barst var fljótlega búið að tryggja vettvang með því að slökkva þann eld sem var til staðar og fyrstu sjúklingar fengu aðhlynningu strax og vettvangur var öruggur. Fyrstir á vettvang voru flugvallarverðir sem sinna slökkviþjónustu á Egilsstaðaflugvelli og voru þeir búnir að ná tökum á stærsta eldhafinu þegar við hjá Brunavörnum komum á staðinn. Víðir Sigbjörnsson, varðstjóri hjá okkur tók við vettvanginum sem Björgunarstjóri á staðnum og stýrði því eins og herforingi allt til loka. Í þessu slysi voru reyndar 2 slysa vettvangar þar sem einnig hafði mikið brak úr vélinni átt að hafa lent norðan við Eyvindará. Þar voru um 8 manns slasaðir. Ingjaldur annar varðstjóri okkar var settur yfirþeim vettvangi og stjórnaði hann aðgerðum þar. Við hjá Brunavörnum á Austurlandi vilum bara þakka öllum þeim viðbragðsaðilum sem þátt tóku í þessari æfingu fyrir góða samvinnu. Einnig viljum við þakka Flugstoðum fyrir undirbúning þeirra að þessari æfingu og gott samstarf.
|