
| Fyrsta útkallið á árinu 2010 |
| Skrifað af: Björn H. Sigurbjörnsson |
| Þriðjudagur, 16. mars 2010 08:02 |
| Laugardaginn 13. mars barst slökkviliðinu á Egilsstöðum tilkynning um bílslys á Vallarvegi um 10 km. innan við Egilsstaði. Fólksbíll hafði farið útaf í skurð við bæinn Ketilsstaði. Ökumaður var einn í bílnum og var hann látinn þegar að var komið. Slökkviliðið fór á staðinn með tækjabíl 71-171 og slökkvibíl 71-131. Ekki þurfti að beita klippum. |