
| Eldvarnarátak LSOS 2009 |
| Skrifað af: Björn H. Sigurbjörnsson | |||
| Þriðjudagur, 24. nóvember 2009 11:55 | |||
|
Þá er komið að Eldvarnarátaki Landssambandi slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna sem haldið er ár hvert. Brunavarnir á Austurlandi taka þátt í þessu átaki með því að fara í alla skóla á svæðinu og hitta krakka í 3. bekk. Þetta eldvarnaátak er ætlað fyrst og fremst fyrir þann aldurshóp. Brunavanir á Austurlandi hafa einnig farið í 1. og 2. bekk með góða og skemmtilega gjöf frá Lionsklúbbum á svæðinu sem er litabók sem heitir "Lærið allt um brunavarnir á heimilinu". Nú hefur LSOS gefið út myndskreytta bók um slökkviálfana Loga og Glóð og illvirkjann Brennu-Varg. Bókin ber heitið Brennu-Vargur og er spennusaga. Logi og Glóð koma óvænt fram á sjónarsviðið þegar heimili þeirra eyðist í eldi. Sigfinnur slökkviliðsstjóri tekur þau upp á arma sína og býður þeim að búa í slökkvistöðinni í Bænum, þar sem sagan gerist. Systkinin gerast þá aðstoðarmenn slökkviliðsins enda eru þau búin þeim hæfileika að geta vaðið eld og brennistein eins og ekkert sé. Í ljós kemur að Brennu-Vargur gengur laus í Bænum. Hann er fjarskyldur ættingi Loga og Glóðar og hefur ekkert gott í hyggju. Þegar Brennu-Vargur lætur til skarar skríða á ný reynir mjög á snarræði og hugrekki Loga og Glóðar.
|