Bílar og búnaður

Heimsóknir á síðuna

Skoða innlit efnis : 47565
Forsíða Fréttir 12 slökkviliðsmenn Brunavarna á Austurlandi sóttu námskeið í Brunamálaskólann
12 slökkviliðsmenn Brunavarna á Austurlandi sóttu námskeið í Brunamálaskólann
Skrifað af: Baldur Pálsson   
Þriðjudagur, 11. maí 2010 17:29

Námskeið brunamálaskólans á Djúpavogi maí 2010 12 slökkviliðsmenn Brunavarna á Austurlandi sóttu námskeið í brunamálaskólanum sem haldið var á Djúpavogi um síðustu helgi. 3 slökkviliðsmenn sóttu námskeiðið frá Langanesbyggð og þar af sjálfur slökkviliðsstjórinn Axel Gunnarsson.

Allir slökkviliðsmenn á Djúpavogi sóttu námskeiðið og með því luku þeir allir námi í brunamálaskólanum ásamt einum slökkviliðsmanni frá Egilsstöðum. Þetta er lofsverður árangur  slökkviliðsmanna á Djúpavogi og mikill styrkur fyrir samfélagið að vita af þeirri faglegu þekkingu sem slökkviliðsmennirnir hafa aflað sér á mjög skömmum tíma í Brunamálaskólanum.

Hluti af náminu fór fram í eldgámi sem Brunavarnir á Austurlandi eiga og hefur verið lánaður Slökkviliði Fjarðabyggðar undanfarin ár vegna þjálfunar atvinnuliðsins þar. Slökkviliðsmenn Fjarðabyggðar tóku vel á móti okkar mönnum og lánuðu slökkvibíl og annan búnað og  myndirnar sem hér fylgja eru teknar við slökkvistöðina á Reyðarfirði. Sjá myndir hér

 

Viðburðir

Engir viðburðir

Könnun

Er slökkvitæki á þínu heimili
 

Dagatal

September 2010
S M Þ M F F L
29 30 31 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 1 2