
| 112 dagurinn |
| Skrifað af: Björn H. Sigurbjörnsson |
| Fimmtudagur, 11. febrúar 2010 12:15 |
|
112 dagurinn er í dag 11/2 2010. Viðbragðsaðilar á starfssvæði Brunavarna mun vera sýnilegir í dag. Betri upplýsingar um þennan dag er að finna á heimasíðum Brunamálastofnunar - brunamal.is og 112 - 112.is Dagskráin verður sem hér segir á þeim stöðum sem hún hefur verið ákveðin. Egilsstaðir: Opið hús hjá björgunarsveitinn Hérað í dag 11/2 kl. 18:00 þar sem viðbragðsaðilar koma saman og sýna búnað. Slökkviliðsmenn okkar mæta á staðinn með tæki og búnað. Vopnafjörður: 112 dagurinn verður færður á laugardaginn 13/2 kl.13:00. Dagskráin byrjar með því að viðbragðsaðilar taka rúnt um bæinn og láta vita af sér og síðan safnast allir saman í húsi björgunarsveitarinnar Vopna þar sem slysavarðskonur bjóða upp á kaffi fyrir almenning. Djúpivogur: 112 dagurinn verður færður á laugardaginn13/2. Upp úr kl. 12:00 munu allir viðbragðsbílar byggðarlagsins keyra um götur Djúpavogs. Kl. 13:00 - 15:00 bjóða viðbragðsaðilar Djúpavogs upp á léttar veitingar í Sambúð. Í Sambúð verða til sýnis bílar og græjur af öllum stærðum og gerðum. Sjá heimasíðu Djúpavogs - djúpivogur.is Seyðisfjörður: Haldið verður upp á 112 daginn í dag þar sem viðbragðsaðilar fara rúnt um bæinn á útkallsbílum og hittast við björgunarsveitarhús Ísólfs. Sjá betur á heimasíðu Seyðisfjarðar - sfk.is Borgarfjörður: Óákveðið |