|
Skrifað af: Björn H. Sigurbjörnsson
|
|
Þriðjudagur, 12. maí 2009 08:20 |
|
Þá er er fyrsta æfing lokið í heitri reykköfu. Á þessari æfingu voru slökkviliðsmenn á egilsstöðum og Borgarfirði. Farið var fyrst yfir eðli elds og öryggisreglur áður en farið var kveikt upp í gámnum. Æfingin gekk vel og náðist upp flott yfirtendrun sem slökkviliðsmenn réðu vel við. Í næstu æfingu sem haldin verðu í gámnum munu slökkviliðsmenn frá Vopnafirði, Djúpavogi og Seyðisfirði mæta. Skipta verður þessum hópum í tvö gengi þar sem um of marga í einu er að ræða.
|