|
Skrifað af: Baldur Pálsson
|
|
Föstudagur, 23. september 2011 10:37 |
|
Útköll á árinu 2010 voru 17 hjá Brunavörnum á Austurlandi, þar af 13 eldútköll og 4 í bílslys. Ekkert útkall varð á slökkviliðið á Djúpavogi og ekki heldur á slökkviliðið á Borgarfirði. Mesta eldútkall á svæðinu varð 30 júní í Fellabakarí en kölluð voru til aðstoðar slökkviliðin á Seyðisfirði, Fjarðabyggð, Vopnafirði og einnig Björgunarsveitin Hérað.
Slökkviliðið á Egilsstöðum var kallað út 18 desember til aðstoðar vegna elds í spenni í Álverinu á Reyðarfirði. Þetta var án efa mesti eldur sem slökkvilið hafa staðið frammi fyrir á Austurlandi og mikil ógn sem af honum safaði og gat haft veruleg áhrif á þjóðarhag. |